FJÁRMÖGNUN
2022 Dec 13
Written By Thorunn Jonsdottir
Styrkjastefna fyrir nýsköpunarverkefni
Viðskiptahraðlar stuðla að eflingu verkefna á öllum stigum þróunar með fjárfestingu, þjálfun og leiðsögn með það að markmiði að efla atvinnulíf, auka sjálfbærni og/eða knýja fram jákvæðar samfélagslegar breytingar. Þeir eru góður vettvangur til að stækka tengslanetið, fá ráð frá ráðgjöfum og reyndum frumkvöðlum og til að komast í kynni við fjárfesta.
Íslenskt frumkvöðlasamfélag hefur ekki verið eftirbátur annarra landa í fjölda áhugaverðra viðskiptahraðla og eflaust eigum við met í fjölda hraðla miðað við höfðatölu. Ég hef tekið saman þá viðskiptahraðla sem eru starfandi á Íslandi í dag auk þess að fjalla stuttlega um viðskiptaáætlanakeppnina Gulleggið, sem er frábært stökkpallur yfir í viðskiptahraðla.
AWE
AWE er skammstöfun á Academy for Woman Entrepreneurs og er nýsköpunarhraðall fyrir konur sem Háskóli Íslands stendur fyrir í samvinnu við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Markmið hraðalsins er að efla konur til að þróa áfram viðskiptahugmyndir, veita fræðslu og víkka tengslanetið. Hraðallinn er fyrir konur á öllum aldri og hægt er að sækja um sem teymi eða einstaklingur, með eða án viðskiptahugmyndar. AWE hraðallinn verður haldinn í annað sinn árið 2022 og verður kynningarfundur um hraðalinn haldinn rafrænt þann 30. desember 2021 klukkan 12:00. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsíðu AWE hér.
Gulleggið
Þó Gulleggið sé ekki viðskiptahraðall þá þótti mér tilvalið að hafa það með þar sem um er að ræða stærstu og líklega elstu frumkvöðlakeppni Íslands. Gulleggið er frábær vettvangur fyrir nýja frumkvöðla sem eru að stíga sín fyrstu skref og vantar aðstoð við að koma hugmyndinni sinni í framkvæmd. Einnig er hægt að skrá sig til leiks án viðskiptahugmyndar til að finna áhugaverða hugmynd og teymi til að vinna með.
Umsóknarfrestur fyrir árið 2022 er til 13. janúar og verður það í 15. skiptið sem keppnin er haldin. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Gulleggsins hér.
Snjallræði
Snjallræði er viðskiptahraðall sem einblínir á hugmyndir sem lúta að nýsköpun með sjálfbærni að markmiði og viljann til að knýja fram stórar samfélagslegar breytingar. Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðall þar sem einstaklingar, frjáls félagasamtök og fyrirtæki fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar með sjálfbærni að leiðarljósi. Opið er fyrir nýsköpun á öllum stigum þróunar allt frá nýrri hugmynd yfir í þróað nýsköpunarverkefni starfandi fyrirtækis. Teymin fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá íslenskum og erlendum sérfræðingum ásamt fjölda leiðbeinenda úr atvinnulífinu. Umsóknarfrestur ársins 2021 var í janúar og hófst hraðallinn í febrúar. Ekki liggur fyrir umsóknarfrestur fyrir árið 2022.
Ef þú ert með hugmynd sem hefur skýr og jákvæð samfélagsleg áhrif þá mæli ég eindregið með að þú kynnir þér Snjallræði. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Snjallræðis hér.
Startup Orkídea
Startup Orkídea er viðskiptahraðall fyrir teymi sem eru að vinna í nýsköpunarverkefni á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni. Hraðallinn stendur yfir í sex vikur og skiptist upp í þriggja daga vinnusmiðjur og fjarfundi þess á milli. Þau teymi sem valin eru í viðskiptahraðalinn fá aðgang að fyrsta flokks vinnuaðstöðu, fræðslu, þjálfun og breiðu tengslaneti sérfræðinga.
Umsóknarfrestur fyrir árið 2022 er til 24. janúar. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Startup Orkídea hér.
Women Innovators Incubator
Women Innovators Incubator er nýr viðskiptahraðall sem var settur á laggirnar í vor með það að markmiði að styðja við konur sem búa yfir frábærum hugmyndum. Um er að ræða samstarf á milli Women Tech Iceland, Huawei og Women in Technology Huawei þar sem markmiðið er að fá hugmyndir sem geta knúið fram jákvæðar breytingar sem og vakið upp forvitni til að læra á nýja tækni, viðskiptalausnir og náið samstarf við frumkvöðla við að koma hugmyndum í framkvæmd. Hraðallinn mun standa yfir frá apríl til maí árið 2022 og verður opnað fyrir umsóknir í febrúar. Ef þú ert kona og þú býrð yfir hugmynd sem gæti knúið fram jákvæðar breytingar í tækni eða viðskiptalausnum þá mæli ég með að þú sækir um. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Women Tech Iceland hér.
Hringiða
Hringiða er viðskiptahraðall með það markmið að efla og styðja nýja tækni og aðferðir sem veita úrlausn í umhverfismálum. Viðskiptahraðallinn byggir á erlendri fyrirmynd og býður upp á metnaðarfullan vettvang fyrir vöruþróun og góðan grunn til að leita sér fjármagns. Lögð er áhersla á skipulag og fagmennsku og eru allt að tíu verkefni sem fá aðgang að víðu tengslaneti úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun við að koma vöru á markað.
Umsóknarfrestur ársins 2021 var í febrúar og hraðallinn hófst í apríl. Ekki liggur fyrir umsóknarfrestur fyrir árið 2022. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Hringiðu hér.
Startup Supernova
Startup Supernova viðskiptahraðallinn leggur áherslu á alþjóðlega skalanlegar viðskiptalausnir. Þátttakendur fá fræðslu og þjálfun við að þróa viðskiptahugmyndina sína í samvinnu við reynda frumkvöðla og fjárfesta. Hraðallinn stendur yfir í tíu vikur og skiptist niður í þrjá fasa, sem lýkur svo með kynningu á fjárfestadegi.
Opnað verður fyrir umsóknir í febrúar 2022. Hraðallinn sjálfur hefst svo í júní. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Startup Supernova hér.
Vaxtarrými
Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall á Norðurlandi fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki sem og rótgróin fyrirtæki í nýsköpun. Markmið hraðalsins er að auka sjálfbærni í tengslum við mat, vatn og orku og að gefa þátttakendum tækifæri til að efla sig og fá meðbyr með verkefnum sínum. Þátttakendur fá aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi ásamt vinnustofum og fræðslufundum til að byggja upp breiðara tengslanet. Vaxtarrými fer fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum á meðan hraðlinum stendur.
Umsóknarfrestur ársins 2021 var til 20. september og hófst hraðallinn í október. Ekki liggur fyrir umsóknarfrestur fyrir árið 2022. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Vaxtarrýmis hér.
Startup Westfjords
Startup Westfjords er ætlaður fyrir skapandi einstaklinga, frumkvöðla og sprotafyrirtæki sem vilja komast í nýtt umhverfi og vinna nýsköpunarverkefni á öllum stigum þróunar í nánd við náttúruna. Um er að ræða svokallaðan nýsköpunarhemil þar sem megináhersla er lögð á að taka skref til baka, komast í nýtt umhverfi og núllstilla sig. Mikil áhersla er lögð á að veita þátttakendum aðgang að frumkvöðlasamfélaginu á Þingeyri og fá sveitamenninguna beint í æð. Teymin fá aðgang að Blábankanum, samfélags- og frumkvöðlasetri Þingeyrar, þar sem reyndir leiðbeinendur veita aðstoð við að koma verkefnum af stað. Tilgangur hemilsins er að veita einstaka upplifun þar sem þátttakendur geta aftengst daglegri rútínu og stressi til að fá skýrari sýn á verkefnin sín.
Umsóknarfrestur ársins 2021 var í ágúst og hófst hemillinn í október. Ekki liggur fyrir umsóknarfrestur fyrir árið 2022. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Startup Westfjords hér.
Til sjávar og sveita
Til sjávar og sveita er viðskiptahraðall sem snýr að lausnum í landbúnaði, haftengdum iðnaði og smásölu. Um er að ræða samstarfsverkefni Icelandic Startups og Íslenska sjávarklasans og var hann fyrst haldinn árið 2019. Hraðallinn er metnaðarfullur vettvangur til vöruþróunar sem snýr að hátækni í matvælaiðnaði, nýsköpun í lausnum í landbúnaði og haftengdum iðnaði og betri nýtingu hráefna þar sem sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Umsóknarfrestur ársins 2021 var í nóvember og hófst hraðallinn í sama mánuði. Ekki liggur fyrir umsóknarfrestur fyrir árið 2022. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Til sjávar og sveita hér.
Firestarter
Firestarter er tónlistahraðall haldinn í Reykjavík. Hann var fyrst haldinn árið 2019 af Icelandic Startups í samvinnu við Reykjavik Music City og Icelandic Music Export og er frítt að taka þátt.
Umsóknarfrestur árið 2021 var fram á miðnætti þann 8. desember, ekki liggur fyrir hvenær umsóknarfrestur er árið 2022. Um er að ræða tveggja daga vinnubúðir þar sem markmiðið er að auka nýsköpun í tónlistargeiranum. Fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Firestarter hér.
Masterclass Auðnu tæknitorgs
Auðna tæknitorg stendur hefur frá árinu 2019 staðið reglulega fyrir Masterclass sprettum sem einblína á vísindalega nýsköpun. Þessir sprettir eru hannaðir fyrir vísindafólk, starfsfólk og doktorsnema háskóla, rannsóknastofnana og sjúkrahúsa þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að setja rannsóknir sínar í verðmætaskapandi og vísindalegt samhengi undir leiðsögn sérfræðinga og reynslumikilla einstaklinga á ýmsum sviðum. Ekki liggur fyrir dagsetning fyrir viðburði á árinu 2022 en fyrir frekari upplýsingar má sjá vefsíðu Auðnu tæknitorgs hér.
Eins og sjá má er mikil gróska í viðskiptahröðlum/hemlum á Íslandi sem einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt sér til að þróa hugmynd sína áfram undir leiðsögn sérfræðinga úr atvinnulífinu. Þátttaka í viðskiptahraðli veitir ómetanlega reynslu ásamt því að veita tækifæri til að vera umkringd metnaðarfulllum frumkvöðlum með svipað hugarfar. Allir ættu að geta fundið sér hraðal - eða hemil - við sitt hæfi.
Hvaða hraðal ætlar þú að sækja um?
Athugið að greinin var skrifuð í desember 2021. Greinin verður ekki uppfærð og því kunna dagsetningar sem fram koma í greininni að vera úreltar þegar greinin er lesin.