STYRKIR
Written By Thorunn Jonsdottir
Nýtt matsferli fyrir Sprota hjá TÞS
Á fundi Tækniþróunarsjóðs í Nýsköpunarvikunni þann 28. maí 2021 voru kynntar breytingar á matsferli fyrir umsóknir í Fyrirtækjastyrk-Sprota. Breytingarnar eru nokkuð umfangsmiklar og fela í sér að sett verður upp tveggja þrepa kerfi fyrir matsferlið í Sprota og bætt verður við eftirfylgni eftir að styrkur hlýst.
Í febrúar 2022 voru breytingarnar innleiddar og er nýtt matsferli eftirfarandi:
Fasi 1: Umsókn 1 - Mat 1
Í fasa 1 verður lögð áhersla á nýnæmi og verðmætasköpun. Hér er verið að horfa á:
-
verkefnið og markmið þess
-
stöðu þekkingar
-
bakgrunninn og stöðu verkefnis
-
nýnæmið
-
áskoranir
-
viðskiptaleg markmið
Aðeins þær umsóknir sem fá A1 eða A2 í einkunn komast áfram í fasa 2.
Fasi 2: Umsókn 2 - Mat 2
Þær umsóknir sem komast áfram í fasa 2 munu fá 3 vikur frá tilkynningardegi til að fullvinna umsóknina. Umsóknin verður þó opin frá því að opnað er fyrir fyrstu umsóknir í sjóðinn um 6 vikum fyrir umsóknarfrest, svo á meðan beðið er svara úr fasa 1 getur fólk unnið að umsókn í fasa 2.
Í fasa 2 verður lögð áhersla á áhrif og framkvæmd og umsóknir metnar út frá:
-
stjórnun verkefnis
-
hugverkastefnu
-
leið á markað og tengslum
-
þekkingu og bolmagni
-
verk-, tíma- og kostnaðaráætlun
-
gildi samstarfs
-
innlendum verðmætum
-
Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna
Úthlutun & eftirfylgni
Sjóðurinn hefur þá bætt við eftirfylgni og stuðningi sem veitt er í samstarfi við Icelandic Startups. Stuðningsverkefnið hefur fengið nafnið DAFNA. Þessi fasi felur í sér vinnustofur og stuðning frá ráðgjöfum sem leiðbeina styrkþegum við að skipuleggja næstu skref. Eftirfylgnin stendur styrkþegum til boða tvisvar á ári í kjölfar úthlutunar og er áætlað að bjóða styrkþegum annarra styrkja innan Tækniþróunarsjóðs inn í DAFNA þegar fram líða stundir.
Þið getið nálgast umsóknarformið og fylgigögn á rafrænu umsóknarkerfi Rannís (veljið nýja umsókn, Tækniþróunarsjóður og þar fáið þið möguleika á að velja á milli mismunandi styrkjaflokka). Uppfærðar reglur sjóðsins má svo nálgast hér.
Gangi ykkur vel!