Allt sem þú þarft til að skrifa árangursríka umsókn
Sproti Masterclass inniheldur
Sproti Masterclass
Ertu að skrifa nýja umsókn um Fyrirtækjastyrk-Sprota og veist ekki hvar þú átt að byrja? Eða ertu að fara að senda inn uppfærða umsókn og vantar leiðbeiningar varðandi hvernig þú vinnur uppfærsluna?
Vantar þig leiðsögn í gegnum Sprota umsóknina?
Á eitthvað af neðangreindu við um þig?
Ef þú svaraðir „já“ við einni eða fleiri ofangreindum spurningum skaltu lesa áfram.
Sproti Masterclass
Styrkumsóknir geta verið frumskógur og oft erfitt að átta sig á því hvað skiptir máli í ferlinu.
Sproti Masterclass vefnámskeiðið er leiðsögumaður þinn í gegnum umsóknarferlið.
Aðgengi að stafrænni verkfærakistu veitir þér aukinn skilning og sjálfstraust.
Umsóknarskrifin verða leikur einn þar sem þú færð leiðsögn í gegnum ferlið.
Aukinn skilningur eykur fagmennsku og líkur á árangri við styrkumsóknaskrifin.
Allt sem þú þarft til að skrifa árangursríka umsókn
Sproti Masterclass inniheldur
MYNDBÖND
Myndbönd sem leiða þig í gegnum umsóknarferlið.
UMSÓKNARGÖGN
Umsóknargögnin með leiðbeiningum ásamt vinnuskjölum fyrir verk-og kostnaðaráætlanir.
GLÆRUSNIÐMÁT
Sniðmát fyrir glærur sem hjálpar þér að setja upp faglega kynningu til að senda með sem viðauka.
SAMKEPPNISGREINING
Dæmi um myndræna framsetningu á samkeppnisgreiningu.
ORÐALISTI
OrðalistI yfir helstu hugtökin sem koma fyrir í umsóknarferlinu.
HEIMSMARKMIÐ SÞ
Leiðbeiningar fyrir Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
TÉKKLISTI
TékklistI fyrir skilin svo ekkert gleymist á lokametrunum.
Sproti Masterclass
Stafræn verkfærakista sem leiðbeinir þér við skrif á umsókn fyrir Fyrirtækjastyrk-Sprota með það að markmiði að skila af þér faglegri umsókn sem er líkleg til árangurs.
€157
Notast er við greiðslugátt Stripe.
UMSAGNIR
Umsagnir viðskiptavina
Okkur þótti óyfirstíganlegt að skrifa styrkumsókn en fjárfestum í fræðsluefni Þórunnar og sjáum ekki eftir því. Við vorum svo heppnar að fá Fræ styrkinn í fyrstu tilraun og erum sannfærðar um að leiðbeiningar Þórunnar höfðu þar úrslitaáhrif.
Jónína Helga Ólafsdóttir
Meðstofnandi, Aþena - Gagnvirk lestrarþjálfun
Þórunn hefur einstakt lag á því að koma efninu frá sér á hnitmiðaðan hátt og hámarka þannig fræðslugildi þess. Ég mæli hiklaust með því fræðsluefni sem hún hefur að bjóða.
Svava Björk Ólafsdóttir
Meðstofnandi RATA og Hugmyndasmiða, Framkvæmdastjóri Framvís.
Ég hafði ekki mikla reynslu af styrkumsóknaskrifum þegar ég leitaði til Þórunnar. Hún var fljót að greina og ná fram því sem skiptir máli og með hennar aðstoð náði ég inn styrkjum frá Rannís og Hönnunarsjóði.
Brynja Guðnadóttir
Hönnuður og frumkvöðull
HÖFUNDURINN
Rúmlega 15 ára reynsla af styrkumsóknaskrifum
Styrkumsóknir er í eigu Þórunnar Jónsdóttur sem hefur starfað við ráðgjöf á sviði fjármögnunar og styrkumsóknaskrifa í 10 ár og skrifaði þar á undan styrkumsóknir fyrir eigin nýsköpunarverkefni.
Markmið Þórunnar er að deila þekkingu sinni og reynslu sem víðast, enda trúir hún því að allir geti skrifað árangursríka styrkumsókn ef þeir fá góðan stuðning og réttu tólin til að ná árangri.
Tæplega 300 styrkumsóknir
Þórunn hefur tekið þátt í að skrifa hátt í 300 styrkumsóknir á sínum ferli.*
Yfir 30% árangurshlutfall
Meðalárangurshlutfall Þórunnar hjá Tækniþróunarsjóði er rúmlega 30% á 10 ára tímabili.*
Rúmlega 1,5 milljarður í styrki
Þórunn hefur náð í rúmlega 1,5 milljarð í styrki fyrir sína viðskiptavini.*
*að frátöldum skattfrádráttum en Þórunn þar hefur komið að hátt í 100 umsóknum og er með 98% árangurshlutfall.
Algengar spurningar
Hér finnurðu svör við algengum spurningum.
Ef þinni spurningu er ekki svarað hér fyrir neðan, fylltu þá út þetta form og ég svara eins fljótt og auðið er.
Eigandi Styrkumsókna er búsett á Spáni og reksturinn er skráður á Spáni. Því eru öll uppgefin verð í evrum. Virðisaukaskatti er þó skilað til Ísland í samræmi við reglugerðir um sölu á rafrænum vörum innan Evrópu.
Uppgefið verð er með virðisaukaskatti. Eigandi Styrkumsókna er með skráð evrópskt vsk. númer (NEUOSS): EU724005451.
Eingöngu er hægt að greiða fyrir vörurnar með debet- eða kreditkorti. Ekki er mögulegt að gefa út kröfu í íslenskan fyrirtækjabanka/heimabanka þar sem ég er ekki í viðskiptum við íslenskan banka.
Eigandi og ábyrgðamanneskja Styrkumsókna er Þórunn Jónsdóttir og er síðan rekin á eigin (spænskri) kennitölu. Nánari upplýsingar um Þórunni má finna neðst á síðunni.
Eftir kaup hefurðu aðgang að viðkomandi vöru á meðan síðan er í rekstri. Breytingar á skilmálum verða tilkynntar með sanngjörnum fyrirvara.
Þar sem rafrænnar vörur er hægt að neyta (taka úr umbúðunum) um leið og hún hefur verið keypt er almennt ekki skilaréttur á þeim. Ef þú ert óánægð/-ur/óánægt með vöruna eða getur einhverra hluta vegna ekki nýtt þér hana eftir kaup þá hefurðu 48 klst. frá kaupum til þess að láta mig vita og við finnum lausn á málinu.
© Þórunn Jónsdóttir.Öll réttindi áskilin.
info@styrkumsoknir.is.
Calle Eugenio Peñate Suarez 11, Residencial La Vega, Loc. 4
35215 Telde
Las Palmas
Spain