STYRKIR
2022 Nov 18
Written By Thorunn Jonsdottir
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Undanfarin ár hefur meðvitund um bætta heilsu, lífsgæði, mannréttindi og hvernig við förum með jörðina okkar aukist til muna. Það hefur skilað sér inn í styrkjaumhverfið og sjóðir ýmist stofnaðir í kringum þessi mál, t.d. Loftslagssjóður, eða þeir horfa til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun við ákvörðun um úthlutun, t.d. Matvælasjóður og Tækniþróunarsjóður.
Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar þann 24. október árið 1945 með það að markmiði að viðhalda friði með því að efla alþjóðlegt samstarf og öryggi í heiminum. Í dag eru aðildarríkin 193 og hefur Ísland verið aðili síðan árið 1946.
Í september 2015 samþykktu öll aðildarríkin 17 markmið um sjálfbæra þróun sem miða að því að skapa betri framtíð fyrir fólkið og heiminn fyrir árið 2030. Öll markmiðin tengjast innbyrðis og hafa hver sín undirmarkmið þar sem rýnt er betur í áætlunina til að ná þeim fyrir 2030. Meira um Heimsmarkmiðin hér.
Samkvæmt heimasíðu Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er um að ræða framkvæmdaáætlun í þágu alls mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar. Þessi markmið haldast ótvírætt í hendur við aukna nauðsyn fyrir sjálfbærri þróun á heimsvísu og sér í lagi fyrir þróunarlönd sem ekki hafa jafnan aðgang að auðlindum og tækni til að halda í við þróunina. Allar aðildaþjóðir bera sína ábyrgð á að hrinda þessari áætlun í framkvæmd og uppfylla markmiðin, sem eru að mörgu leyti byggð ofan á þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem ekki náðust.
17 Heimsmarkmið á fimm sviðum
Líkt og komið hefur fram þá eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna 17 talsins, en þau ná yfir alls fimm svið sem aðildarríkin telja nauðsynlegt að eiga við svo hægt sé að ná framgangi í sjálfbærri þróun. Sviðin eru eftirfarandi:
Mannkynið: Að útrýma fátækt og hungri og sjá til þess að allir hafi tækifæri til að búa í heilbrigðu umhverfi.
Jörðin: Að ýta undir sjálfbæra neyslu og framleiðslu til þess að vernda jörðina fyrir hnignun. Leitast er eftir því að nýta náttúruauðlindir með sjálfbærum hætti og grípa til afgerandi aðgerða vegna loftslagsbreytinga.
Hagsæld: Að sjá til þess að fólk geti notið hagsældar og notið lífs síns til fulls og að efnahagslegar, félagslegar og tæknilegar framfarir sé í sátt við náttúruna.
Friður: Að tryggja friðsæld og réttlæti um heim allan þar sem enginn eigi að lifa í ótta við óréttlæti og/eða ofbeldi.
Samstarf: Auka alþjóðasamstarf í tengslum við sjálfbæra þróun með aukinni samstöðu, ekki hvað síst þegar kemur að þörfum þeirra fátækustu og viðkvæmustu, með samvinnu allra.
Verkfærakistur
Heimsmarkmiðin eru farin að ná fótfestu hér á landi, en fyrr á þessu ári komu út tvær verkfærakistur um innleiðingu þeirra - annars vegar fyrir sveitarfélög og hins vegar fyrir fyrirtæki. Sú síðarnefnda veitir leiðbeiningar um hvernig fyrirtæki geta lagt sitt af mörkum til að ná Heimsmarkmiðunum með því að aðlaga starfsemi sína, áætlanir sem og árangursmælingar að markmiðunum 17. Verkfærakistuna má finna hér.
Eins og nefnt var í upphafi þessarar greinar hafa nokkrir sjóðir innleitt Heimsmarkmiðin í sitt matsferli og til að mynda starfa Tækniþróunarsjóður, Matvælasjóður, Lóa nýsköpunarstyrkir og Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka eftir þeim.
Áhersla hins opinbera sem og einkageirans um að innleiða markmiðin inn í sitt matsferli fyrir styrki sýnir hversu brýnt það er fyrir frumkvöðla að horfa til þeirra í sínu starfi - ekki eingöngu til að auka líkur á styrk heldur fyrst og fremst til að leggja sitt af mörkum í átt að betri framtíð fyrir mannkynið og jörðina. Heimsbyggðin stendur frammi fyrir stórum og alvarlegum áskorunum á mörgum sviðum og við sem rekum lítil og meðalstór fyrirtæki getum saman lagt okkar af mörkum til að stuðla að því að Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun náist. Margt smátt gerir eitt stórt!
Hvað getum við gert til að hafa áhrif?
Við hjá Thorunn ráðgjöf erum að leggja af stað í þá vegferð að innleiða Heimsmarkmiðin í okkar daglega rekstur. Fyrsta skrefið felur í sér að skoða fyrrnefnda verkfærakistu fyrir fyrirtæki, greina hvaða markmið eiga við um okkar rekstur og velja svo þau markmið sem við ætlum að skuldbinda okkur til að vinna að. Samhliða því munum við ráðast í stefnumótun til næstu þriggja ára til að markmiðin séu ekki eingöngu eitthvað sem við skrifum á heimasíðuna okkar heldur séu þau hluti af framtíðarsýn og stefnu okkar næstu árin.
Við hvetjum þig til að kynna þér Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hvað þú getur gert til að vinna að sjálfbærri framtíð fyrir heimsbyggðina.