STYRKIR
Written By Thorunn Jonsdottir
Hvað er nýnæmi?
Skilgreiningin á nýnæmi vefst fyrir mörgum og ekki að ástæðulausu. Samkvæmt íslenskri nútímamáls orðabók Stofnunar Árna Magnússonar er nýnæmi skilgreint sem eitthvað nýstárlegt eða nýjung. Það er ekkert sérstaklega ítarleg skýring og því við því að búast að fólk túlki það ýmist mjög þröngt eða mjög vítt - allt eftir hentugleika.
Tækniþróunarsjóður kafar aðeins dýpra í skilgreiningu á nýnæmi, en í kafla 5.5. í reglum sjóðsins segir að nýnæmi sé „...breyting á þekktum forsendum sem leiðir til aukinnar verðmætasköpunar á markaði. Skilgreiningin felur í sér nauðsyn þess að skýra stöðu þekkingar, tækni og verklags á sviðinu og hvernig þessir þættir tengjast nýjum þörfum og tækifærum á markaði. Nýnæmi verkefnis er þannig mælikvarði á áhrif verkefnisins á forsendur til að ná forskoti á markaði á grundvelli nýrra lausna, aðferða, búnaðar, þekkingar, tækni eða verklags sem eru afurðir verkefnisins.“
Taktu eftir, talað er um breytingu á tækni, ferlum, hönnun eða þjónustu sem leiðir til aukinnar verðmætasköpunar. Við getum því hér með greitt úr þeim algenga misskilningi að nýnæmi verði að fela í sér að finna upp hjólið. Stundum þarf bara að gera hjólið aðeins betra til að það feli í sér nýnæmi. Nýnæmi getur þannig falið í sér lausn, ferla, þjónustu, tækni eða hönnun þar sem er leyst úr ákveðnu verkefni með nýjum leiðum. Samsetning á hugmyndafræði úr ólíkum áttum til að leysa vandamál á hátt sem ekki hefur verið gert áður getur einnig falið í sér nýnæmi.
Á hverjum degi koma fram nýjar lausnir, smáar sem stórar, sem gera eldri lausnir úreltar, jafnvel án þess að við hugsum út í það. Einn daginn voru allir að kaupa sér DVD diska í Hagkaup og ná í lög á iTunes til að setja á iPodinn sinn. Svo komu Netflix og Spotify fram á sjónarsviðið og DVD spilararnir fóru í Góða hirðinn og iPodarnir gleymdust ofan í draslskúffu.
Stundum eru það ytri aðstæður sem gera breytingar eða umbyltingu mögulegar. Tækniframfarir, breytingar í neytendahegðun eða ný löggjöf geta þannig skapað jarðveg fyrir nýjar lausnir sem áður voru ekki mögulegar.
Þegar þú veltir því fyrir þér hvar nýnæmið liggur í þinni lausn er gott að velta upp eftirfarandi spurningum:
-
Hvaða breytingar hafa orðið í tækni, lagasetningu, neytendahegðun, þörfum o.s.frv. sem gera þér kleift að þróa þína lausn núna (sem ekki var mögulegt að gera áður)?
-
Hvaða vandamál eru á markaði sem þín lausn mun leysa betur en aðrar núverandi lausnir?
-
Hverjir eru helstu aðgreiningarþættir þinnar lausnar frá þeim sem fyrir eru á markaði?
Hvar liggur nýnæmi þinnar lausnar?